16.10.2013 | 22:00
Náttúrufræði - Plöntur
Í Náttúrufræði vorum við að vinna verkefni um plöntur út frá bókinni Íslensk flóra. Við áttum að velja 2-3 plöntur, ég náði að gera 3 verkefni. Fyrsta plantan sem ég valdi var krossfífill, ég átti að nota bókina Íslensk flóra til að svara spurningum, hérna eru nokkur dæmi um spurningar: hvað heitir plantan, úr hvaða ætt er plantan, hvernig er rótin, hvernig er krónublaðið og nokkrar í viðbót en ég man ekki hvernig þær voru. Svo valdi ég líka hjartarfa og hvítsmára og svaraði sömu spurningum og ég gerði Þegar ég byrjaði á krossfíflinum. Þegar ég var búin að svara öllum spurningunum fór ég út og fann krossfífil, fór með hann inn og náði í tvö blöð og klemmdi blómið saman, síðan náði ég í nokkrar þungar bækur og setti þær ofan á blómið. Þannig þurrkar maður plöntuna. Síðan í næsta náttúrufræðitíma náði ég í plöntuna og límdi hana á blaðið með öllum svörunum við spurningunum. Ég vann öðruvísi með hjartarfann og hvítsmárann, í staðinn fyrir að fara út og þurrka plöntuna teiknaði ég hana í staðinn á blaðið og svaraði svo öllum spurningunum.
Þetta eru plönturnar sem ég gerði:
Um bloggið
Linda Líf Boama
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 12
- Frá upphafi: 687
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.